_
SKILMÁLAR
Velkomin á heimasíðu ARYA. Hér að neðan eru almennir skilmálar og viðmið sem við störfum eftir.
Ef þú hefur einhverjar spurningar geturðu alltaf sent skilaboð á Instagram síðu ARYA the label hér eða sent okkur tölvupóst á arya@aryathelabel.com.
AFHENDING VÖRU
Allar pantanir eru afgreiddar innan 1-2 virkra daga frá kaupum. Afhendingartími fer eftir staðsetningu, en á Íslandi má búast við að afhending taki 1-5 daga.
ARYA ber ekki ábyrgð á töf eða týndum sendingum eftir að þær fara úr okkar vöruhúsi. Einnig ber ARYA ekki ábyrgð á tjóni sem verður á vöru í flutningi.
VERÐ OG SENDINGARKOSTNAÐUR
Hjá ARYA leggjum við áherslu á að bjóða upp á hágæða vörur á hagstæðu verði.
Allar vörur ARYA eru sendar með Dropp eða Pósturinn, og sendingarkostnaður er í samræmi við verðskrá þeirra.
Öll verð í netverslun innihalda 24% virðisaukaskatt, en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.
Við bjóðum upp á frían sendingarkostnað á pöntunum yfir 20.000 ISK.
SKIL OG SKIPTI
Við bjóðum upp á 30 daga skilarétt við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir hvenær varan var keypt. Einnig er hægt að gefa upp nafn og bókunarnúmer, og við finnum pöntunina fyrir þig.
Til að hægt sé að skila vöru þarf hún að vera í upprunalegum umbúðum, ónotuð og með miðanum á.
Skil miðast við upprunalegt kaupverð vörunnar, nema hún hafi verið á útsölu við vöruskil. Vörum sem keyptar eru á útsölu er ekki hægt að skila. Ef óskað er eftir annarri stærð og hún er ekki til, er ekki hægt að fá endurgreiðslu.
Viðskiptavinur greiðir sendingarkostnað fyrir endursendingu með Dropp til að koma vörunni aftur til okkar.
Ef þú vilt skila eða skipta vöru, vinsamlegast sendu tölvupóst á arya@aryathelabel.com.
GÖLLUÐ VARA
Ef vara er gölluð, er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn, og við greiðum allan sendingarkostnað sem fylgir henni.
Við bjóðum einnig upp á endurgreiðslu á gölluðum vörum.
Fyrir frekari upplýsingar um gallaðar vörur og endurgreiðslur, vinsamlegast sendu tölvupóst á arya@aryathelabel.com.
PERSÓNUVERND OG VEFKÖKUR
Hjá ARYA er öryggi þitt í forgangi, og við leggjum áherslu á að meðhöndla persónuupplýsingar með varkárni.
Vefkaka er lítil textaskrá sem vistast á tölvu eða snjalltæki þegar notandi heimsækir vefsíðu í fyrsta sinn. Við notum vefkökur til að einfalda viðskiptavinum kaupferlið.
ÖRYGGISSKILMÁLAR
ARYA áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða til að hætta að bjóða upp á vörutegundir án fyrirvara. Við áskiljum okkur einnig rétt til að staðfesta pantanir í síma.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði varðandi allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Ef þú þarft frekari upplýsingar, ekki hika við að hafa samband við okkur á arya@aryathelabel.com.